Lífræn efni   Unnin verkefni   Gögn og niðurstöður

Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki


Vatnsskarð I

Staðsetning innan svæðis: Vestan Krýsuvíkurvegar.
Framkvæmdaár: 2000.
Stærð: 3 ha.
Hæð yfir sjó: 180 m.
Samstarfsaðilar GFF: Landsvirkjun.

Landlýsing:

Halli: 0%.
Landgerð: Melur og virk rofabörð.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Gisinn melagróður.
Aðgerð: Dreifing lífrænna efna og sáning grasfræs.

Gróðurfar eftir uppgræðslu:

Meðalgróðurþekja: 70%. Þéttleiki gróðurs var breytilegur vegna ójafnrar dreifingar lífrænna efna.
Tegundir grasa og hálfgrasa: Blásveifgras, blávingull, bugðupuntur, fjallasveifgras, móasef, rýgresi, snarrótarpuntur, túnvingull, týtulíngresi; axhæra, vallhæra.
Aðrar plöntutegundir: Blóðberg, brjóstagras, geldingahnappur, gulmaðra, gulvíðir, haugarfi, hvítmaðra, kornsúra, krossmaðra, ljónslappi, lokasjóður, melablóm, mosi, smjörlauf.

Umsögn:

Árangur verður að teljast góður miðað við lágan aldur ræktunarinnar. Þéttleiki gróðurs er breytilegur vegna ójafnrar dreifingar lífrænu efnanna. Rofabörð eru alveg lokuð.

Árangur: Góður.



Vatnsskarð II

Staðsetning innan svæðis: Norðan Krýsuvíkurvegar.
Framkvæmdaár: 2000.
Stærð: um 3 ha.
Hæð yfir sjó: 180 m.
Samstarfsaðilar GFF: Landsvirkjun.

Landlýsing:

Halli: 2-10%
Hallaátt: Norðaustur.
Landgerð: Melur.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Gisinn melagróður.
Aðgerð: Dreifing lífrænna efna og sáning grasfræs.

Gróðurfar eftir uppgræðslu:

Meðalgróðurþekja: 70%.
Tegundir grasa og hálfgrasa: Blávingull, bugðupuntur, snarrótarpuntur, túnvingull, týtulíngresi, vallarsveifgras; axhæra, móasef.
Aðrar plöntutegundir: Augnfró, beitilyng, bláberjalyng, blóðberg, brjóstagras, dúnurt, geldingahnappur, grávíðir, haugarfi, hjartarfi, hlaðkolla, holtasóley, hundasúra, hvítmaðra, kornsúra, klóelfting, krækilyng, lokasjóður, ljónslappi, lambagras, lúpína, melablóm, músareyra, mýrfjóla, smjörlauf.

Umsögn:

Árangur uppgræðslunnar er góður. Á svæðinu er mikið af staðbundnum tegundum og er greinilegt að þær hafa nýtt sér lífrænu efnin vel.

Árangur: Góður

 

www.gff.is - Laugavegi 13 - 511 1930 - gff@gff.is