Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki
|
Ullarnesbrekka í Mosfellsbæ I
Ullarnesbrekka í Mosfellsbæ var fyrsta uppgræðslusvæði sem samtökin Gróður fyrir
fólk unnu við eftir að þau voru stofnuð 1997. Svæðið var þá meira og minna
ógróið, sandgryfjur og melar sem oft fauk sandur úr. Þar var unnið í tvö sumur
og nú má heita að svæðið sé algróið, enda hefur Mosfellsbær haldið starfinu
áfram með glæsilegum árangri. Þar er nú íþróttavöllur og útivistarsvæði. Gerð
var úttekt á árangri uppgræðslunnar á fjórum upprunalegum uppgræðslusvæðum.
Staðsetning innan svæðis: Börð og brekkur syðst á svæðinu.
Framkvæmdaár: 1997-1998.
Hæð yfir sjó: Um 60 m.
Heildarstærð: 40 ha.
Samstarfsaðilar GFF: Landsvirkjun, Ingvar Helgason h/f,
Gámaþjónustan h/f. og Mosfellsbær.
Landlýsing:
Halli: 20-30%.
Hallaátt: Norð-norðvestur.
Landgerð: Grýtt malarurð með sandi; moldarbörð inn á milli.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Slitróttur melagróður.
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna, sáning grasfræs og
trjáplöntun.
Gróðurfar eftir uppgræðslu:
Meðalgróðurþekja: 100%
Tegundir grasa og hálfgrasa: Beringspuntur, blásveifgras,
blávingull, hálíngresi, ilmreyr, snarrótarpuntur, túnvingull; axhæra, vallhæra.
Aðrar plöntutegundir: Augnfró, baldursbrá, blóðberg,
gleym-mér-ei, gullkollur, gulmaðra, holurt, hundasúra, hvítmaðra, klóelfting,
kornsúra, ljónslappi, ljósberi, loðvíðir, lokasjóður, lyfjagras, mýrasóley,
skarifífill, smjörlauf, túnsúra.
Umsögn:
Uppgræðslan hefur tekist mjög vel, en landið var rýrt fyrir, dreifing lífrænna
efna nokkuð ójöfn og þess vegna er gróður misjafnlega gróskumikill.
Árangur: Ágætur.
Ullarnesbrekka II
Staðsetning innan svæðis: Brekkur austur af núverandi bílastæði
við íþróttavöll.
Framkvæmdaár: 1997-1998.
Hæð yfir sjó: Um 60 m.
Samstarfsaðilar GFF: Landsvirkjun, Ingvar Helgason h/f,
Gámaþjónustan h/f og Mosfellsbær.
Landlýsing:
Halli: 8-15%.
Hallaátt: Norðvestur
Landgerð: Malargryfjur og aflíðandi brekkur
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Slitróttur melagróður
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna, sáning grasfræs og
trjáplöntun.
Gróðurfar eftir uppgræðslu:
Meðalgróðurþekja: 95-100%
Tegundir grasa og hálfgrasa: Beringspuntur, blávingull,
háliðagras, snarrótarpuntur, túnvingull, vallarfoxgras; vallhæra.
Aðrar plöntutegundir: Augnfró, brennisóley, dúnurt,
gleym-mér-ey, hnúskakrækill, hundasúra, hvítsmári, lokasjóður, músareyra, njóli,
rauðsmári, skarifífill, túnfífill, túnsúra, vallelfting, vallhumall.
Umsögn:
Mjög gróskumikill grasvöxtur, allt að 100 -150 cm hár. Mikil sina frá fyrra ári.
Vegna misjafnrar dreifingar áburðarefna gætti nokkurrar sölnunar gróðurs á
svæðinu.
Árangur: Ágætur
Ullarnesbrekka III
Staðsetning innan svæðis: Við núverandi leiktæki á
útivistarsvæðinu.
Framkvæmdaár: 1998-1999.
Samstarfsaðilar GFF: Landsvirkjun, Ingvar Helgason h/f,
Gámaþjónustan h/f og Mosfellsbær.
Hæð yfir sjó: Um 60 m.
Landlýsing:
Halli: 8-15%
Hallaátt: Suður
Landgerð: Malargryfjur og aflíðandi brekkur.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Lítt grónir melar með
mólendiseyjum.
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna, sáning grasfræs og
trjáplöntun.
Gróðurfar eftir uppgræðslu:
Meðalgróðurþekja: 95%
Tegundir grasa og hálfgrasa: Blávingull, hálíngresi; axhæra,
vallhæra.
Aðrar plöntutegundir: Beitilyng, blóðberg, fjallagrös,
grænvöndur, gullkollur, gulmaðra, hvítmaðra, klóelfting, krossmaðra, ljónslappi,
maríuvöndur, músareyra, mýrasóley, sýkigras, vallelfting. Jafni og mosi í
sverðinum.
Umsögn:
Góð gróðurþekja og gróðurfar einkennist af tvíkímblaða blómplöntum og nokkurrri
íblöndun grastegunda. Þó eru hávaxnar, þéttar graseyjar þar sem hálíngresi er
mest áberandi. Í heild er gróður ekki gróskumikill.
Árangur: Ágætur.
Ullarnesbrekka IV
Staðsetning innan svæðis: Á miðju svæðisins, í nágrenni
bílastæðis við íþróttavöll.
Framkvæmdaár: 1998-1999.
Hæð yfir sjó: Um 60 m.
Samstarfsaðilar GFF: Landsvirkjun, Ingvar Helgason h/f,
Gámaþjónustan h/f og Mosfellsbær.
Landlýsing:
Halli: 20%
Hallaátt: Suð-suðaustur
Landgerð: Grýtt malarurð með sandi; moldarbörð inn á milli.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Slitróttur melagróður
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna og sáning grasfræs.
Gróðurfar eftir uppgræðslu:
Meðalgróðurþekja: 100%
Tegundir grasa og hálfgrasa: Beringspuntur, snarrótarpuntur,
vallarsveifgras, vallarfoxgras.
Aðrar plöntutegundir: Blóðarfi, brennisóley, haugarfi,
hjartarfi, krossfífill, njóli, skriðsóley, túnfífill, umfeðmingur, vallhumall,
vætudúnurt.
Umsögn:
Uppgræðslan hefur tekist með ágætum. Hæð grasa allt að 100-150 cm og mikil sina.
Árangur: Ágætur
|
|