Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki
|
Úlfarsfell í landi Reykjavíkur I
Staðsetning innan svæðis: Ofarlega í hlíðum fjallsins.
Framkvæmdaár: 1999-2000.
Stærð: Nokkur hundruð fermetrar.
Hæð yfir sjó: 100-140 m.
Samstarfsaðilar GFF: Reykjavík Menningarborg, Skil 21 og
Landsvirkjun.
Landlýsing:
Halli: 30%
Hallaátt: Vestur.
Landgerð: Opin 2-3 m há rofabörð.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Ógrónar moldir.
Aðgerð: Dreifing tilbúins áburðar og sáning grasfræs.
Gróðurfar eftir uppgræðslu:
Meðalgróðurþekja eftir uppgræðslu: 100%.
Tegundir grasa og hálfgrasa: Axhnoðapuntur, beringspuntur, blávingull,
bugðupuntur, ilmreyr, rýgresi, snarrótarpuntur, túnvingull, vallarfoxgras,
vallarsveifgras; móasef, vallhæra.
Aðrar plöntutegundir: Dúnurt, gulmaðra, hundasúra, klóelfting,
ljónslappi, lokasjóður, maríustakkur, músareyra, skarifífill, túnfífill,
túnsúra, tungljurt, vallelfting.
Umsögn:
Fullkomlega hefur tekist við að loka rofabörðum, og er þar nú mikill grasvöxtur
og fjölbreyttar tegundir grasa, þó að útlendar tegundir séu enn ríkjandi. Í
nágrenninu eru ríkulegir fræbankar á fjölbreytilegum gróðurlendum.
Árangur: Ágætur.
Úlfarsfell í landi Reykjavíkur II
Staðsetning innan svæðis: Flatir melar vestan Úlfarsfells.
Framkvæmdaár: 1999-2000.
Stærð: 35 ha.
Hæð yfir sjó: 90-100 m.
Samstarfsaðilar GFF: Reykjavík - Menningarborg, Skil 21 og
Landsvirkjun.
Landlýsing:
Halli: 2 - 4%
Hallaátt: Suður og vestur.
Landgerð: Melar með rofabörðum.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Slitróttur melagróður.
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna, sáning grasfræs og trjáplöntun.
Gróðurfar eftir uppgræðslu:
Meðalgróðurþekja: 90%.
Tegund grasa og hálfgrasa: Beringspuntur, blásveifgras,
blávingull, háliðagras, skriðlíngresi, snarrótarpuntur, túnvingull,
vallarfoxgras; axhæra, móasef, vallhæra.
Aðrar plöntutegundir: Augnfró, beitilyng, bláberjalyng,
blóðberg, dúnurt, flagahnoðri, geldingahnappur, gulvíðir, haugarfi,
hnúskakrækill, holtasóley, holurt, hundasúra, hvítmaðra, hvítsmári, kattartunga,
klóelfting, kornsúra, krossfífill, krækilyng, lambagras, ljónslappi, loðvíðir,
lokasjóður, lúpína, melablóm, músareyra, njóli, rauðsmári, smjörlauf, túnfífill,
túnsúra, vegarfi.
Umsögn:
Árangur sáningarinnar er mjög góður, þannig að landið er orðið nær algróið.
Svæðið er mjög víða blautt á vorin og þess vegna ber nokkuð á tíglamyndun vegna
frosthreyfingar á jarðvegi. Þar rofnar gróðurþekjan. Mikill fjöldi staðbundinna
plöntutegunda vex innan um grasið á svæðinu, jafnvel rauðsmári og hvítsmára.
Árangur: Ágætur.
|
|