Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki
|
Skíðasvæði Víkings í Sleggjubeinsskarði
Staðsetning innan svæðis: Skíðabrekkur.
Framkvæmdaár: 1999 -2000.
Stærð: Um 5 ha
Hæð yfir sjó: 200-300 m.
Samstarfsaðilar GFF: Skrifstofa borgarverkfræðings,
Landsvirkjun og Skíðadeild Víkings.
Landlýsing:
Halli: 8-10% í brekkum í neðanverðu svæðinu en 20-30% í gili.
Hallaátt: Norðvestur.
Landgerð: Aflíðandi brekkur, móbergsurð, raskað svæði.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Allvel grasi gróið neðst en nær
gróðurlaust ofan til í brekkunni.
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna og sáning grasfræs.
Gróðurfar eftir uppgræðslu:
Meðalgróðurþekja: 95%, en um 40% á blettum.
Tegundir grasa og hálfgrasa: Blásveifgras, blávingull,
fjallafoxgras, háliðagras, snarrótarpuntur, stinnastör, varpasveifgras; axhæra,
vallhæra.
Aðrar plöntutegundir: Baldursbrá, bláberjalyng, brennisóley,
haugarfi, hlaðkolla, hundasúra, krækilyng, ljónslappi, lyfjagras, lækjardepla,
maríustakkur, melablóm, mýrfjóla, músareyra, njóli, "rottueyra" (garðplanta),
skarifífill, smjörlauf, túnsúra, vallhumall, vegarfi.
Umsögn:
Í heild getur árangur talist góður en nokkuð er um vatnsrof í gilinu, djúpar
rofrásir sem bera með sér möl og grjót. Einnig voru hjólför eftir bíla og
bifhjól sem hafa spillt gróðri. Nokkur beit sauðfjár hefur verið á svæðinu, en
ekki til tjóns.
Árangur: Ágætur.
|
|