Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki
|
Skógarbringur í Mosfellsbæ
Staðsetning innan svæðis: Norðan Þingvallavegar.
Framkvæmdaár: 1998 og 1999.
Stærð: 20 ha
Hæð yfir sjó: 180-200 m
Samstarfsaðilar GFF: Landsvirkjun og Mosfellsbær.
Landlýsing:
Landgerð: Mólendi, rofabörð, allt að 1 ½ m að hæð, og
hálfgrónir rofaflákar.
Halli: 10-15%
Hallaátt: Suðvestur.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Lyng- og víðigróður í mólendi,
hálfgrónir rofflákar.
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna, sáning grasfræs og
trjáplöntun.
Gróðurfar eftir uppgræðslu:
Meðalgróðurþekja: 90 - 100%
Tegundir grasa og hálfgrasa: Beringspuntur blávingull,
bugðupuntur, ilmreyr, rýgresi, snarrót, túnvingull, vallarsveifgras; axhæra,
vallhæra, stinnastör.
Aðrar plöntutegundir: Augnfró, beitilyng, bláberjalyng,
blóðberg, brennisóley, brjóstagras, geldingahnappur, grámosi, gulmaðra,
haugarfi, holtasóley, holurt, hundasúra, hvítmaðra, kattartunga, kornsúra,
krossmaðra, krækilyng, ljónslappi, loðvíðir, lokasjóður, lyfjagras, músareyra,
mýrelfting, ólafssúra, skarifífill, smjörlauf, túnsúra, vallelfting.
Umsögn:
Góður árangur, rofabörð alveg lokuð og rofflákar fullgrónir. Grassvörður er sums
staðar svo þéttur að tegundum sem fyrir voru í rofflákunum hefur verið útrýmt,
og fræ úr nálægum gróðurlendum hefur átt erfitt með að spíra. Víðast hvar á
svæðinu er þó umtalsverð íblöndun tvíkímblaða blómplantna eins og ofangreindur
plöntulisti ber með sér.
Nokkur frostlyfting hefur orðið á flatlendi neðan rofabarða enda er jarðvegur
þar mjög rakur á vorin. Þar er gróðurþekja aðeins 10-20%.
Gras var tekið að sölna á flákum þegar mæling var gerð og bendir það til þess að
of lítið magn lífrænna efna hafi fallið á þau svæði.
Árangur: Ágætur.
|
|