Lífræn efni   Unnin verkefni   Gögn og niðurstöður

Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki


Leira í Gerðahreppi I

Staðsetning innan svæðis: Á milli golfskálans og Garðsvegar.
Framkvæmdaár: 1998, 1999 og 2000.
Stærð: Heildarstærð svæða I, II og III um 10 ha.
Hæð yfir sjó: 20 m.
Samstarfsaðilar GFF: Gerðahreppur.

Landlýsing :

Landgerð: Gróðursnauður melur.
Halli: 0%.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Strjáll melagróður.
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna og sáning grasfræs.

Gróðurfar eftir uppgræðslu:

Meðalgróðurþekja: Um 95% á elsta svæðinu en um 40% á því yngsta.
Tegundir grasa og hálfgrasa: Axhnoðapuntur, beringspuntur, blávingull, háliðagras, snarrótarpuntur, túnvingull; axhæra, belgjastör, vallhæra.
Aðrar plöntutegundir: Augnfró, baldursbrá, beitilyng, blóðberg, brennisóley, dúnurt, garðamaríustakkur, geldingahnappur, haugarfi, hlaðkolla, hnúskakrækill, holurt, hreindýramosi, hundasúra, hvítmaðra, hvítsmári, kattartunga, klóelfting, krækilyng, lambagras, ljónslappi, lokasjóður, lúpína, lyfjagras, músareyra, mýrelfting, silfurhnappur, skarifífill, smjörlauf, túnfífill, túnsúra, vallhumall, vegarfi.

Umsögn:

Árangur er mjög breytilegur eftir aldri uppgræðslunnar. Full gróðurþekja hafði náðst eftir þrjú ár. Hlutur staðbundinna plöntutegunda og fjöldi þeirra er mikill á svæðinu. Gras var sölnað á blettum þar sem hafði fallið til lítið áburðarmagn.

Árangur: Góður

 

Leira í Gerðahreppi II

Staðsetning innan svæðis: Holt syðst á svæðinu.
Stærð:
Hæð yfir sjó: 20-25 m.
Framkvæmdaár: 2000.
Samstarfsaðilar GFF: Gerðahreppur.

Landlýsing:

Landgerð: Gróðursnautt holt og flatir melar neðan þess.
Halli: 20% í holtinu.
Hallaátt: Suður og suðaustur.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Strjáll melagróður.
Aðgerðir: Drefing lífrænna efna, sáning grasfræs og trjáplöntun.

Gróðurfar eftir uppgræðslu:

Meðalgróðurþekja: 95%.
Tegundir grasa og hálfgrasa: Axhnoðapuntur, beringspuntur, blávingull, háliðagras, snarrótarpuntur, túnvingull; axhæra, belgjastör, vallhæra.
Aðrar plöntutegundir: Augnfró, baldursbrá, beitilyng, blóðberg, brennisóley, dúnurt, geldingahnappur, haugarfi, hlaðkolla, hnúskakrækill, hundasúra, músareyra, holtasóley, holurt, hreindýramosi, hvítmaðra, hvítsmári, kattartunga, klóelfting, krækilyng, lambagras, ljónslappi, lokasjóður, lyfjagras, lúpína, maríustakkur, mýrelfting, skarifífill, smjörlauf, túnfífill, túnsúra, vallhumall, vegarfi, ætihvönn.
Garðplöntum hefur einhvern tíma verið plantað í holtið: Alpabjöllu, burnirót, garðablágresi, garðamaríustakk, kerfli, primúlu, þrenningarfjólu, útlaga ofl. Þar hefur einnig verið plantað alaskavíði, birki, gulvíði, loðvíði og ösp.

Umsögn:

Uppgræðslan hefur tekist með ágætum. Hlutdeild og fjöldi staðbundinna plöntutegunda í gróðurþekjunni er orðinn umtalsverður.

Árangur: Ágætur

www.gff.is - Laugavegi 13 - 511 1930 - gff@gff.is