Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki
|
Lækjarbotnar I
Staðsetning innan svæðis: Hæð norðan Waldorfskóla,um 500 m frá
Suðurlandsvegi.
Framkvæmdaár: 2000.
Stærð: 2 ha.
Hæð yfir sjó: 130 m.
Samstarfsaðilar GFF: Waldorfsskólinn, Kópavogsbær og
Landsvirkjun.
Landlýsing:
Halli: 8-15%
Hallaátt: Norðaustur og suðaustur.
Landgerð: Melur.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Gisinn melagróður.
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna og sáning grasfræs.
Gróðurfar eftir uppgræðslu:
Meðalgróðurþekja eftir uppgræðslu: 90%.
Tegundir grasa og hálfgrasa: Blásveifgras, bugðupuntur,
knjáliðagras, týtulíngresi, vallarsveifgras, hrossanál, móasef.
Aðrar plöntutegundir: Baldursbrá, blóðberg, dúnurt, haugarfi,
hjartarfi, hlaðkolla, holurt, ljónslappi, kornsúra, krossfífill, lúpína,
melablóm, músareyra, njóli, ólafssúra, skarifífill, smjörlauf, túnfífill,
túnsúra, undafífill.
Umsögn:
Árangur uppgræðslunnar er mjög góður og er svæðið orðið nær algróið á tveimur
sumrum.
Árangur: Ágætur.
Lækjarbotnar II
Staðsetning innan svæðis: Tilraunasvæði vestan vegar að
Waldorfskóla.
Framkvæmdaár: 2000.
Stærð: 1-1.5 ha
Hæð yfir sjó: 120-130 m.
Samstarfsaðilar GFF: Kópavogsbær og Landsvirkjun.
Landlýsing:
Halli: 8%
Hallaátt: Suðaustur.
Landgerð: Gjallnáma, grófmalað hraun á yfirborði.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Nánast gróðurlaust, en grámosi á
strjálingi.
Aðgerð: Moltudreifing en ekkert fræ.
Gróðurfar eftir uppgræðslu:
Meðalgróðurþekja: 10%
Tegundir grasa og hálfgrasa: Blávingull, týtulíngres; vallhæra.
Aðrar plöntutegundir: Blóðberg, brennisóley, gulvíðir,
haugarfi, hundasúra, hvítmaðra, krækilyng, lambagras, langkrækill, ljónslappi,
ljósatvítönn, lúpína, mosi, melablóm, melanóra, músareyra, ólafssúra, smjörlauf,
túnfífill, túnsúra, undafífill, þúfusteinbrjótur.
Umsögn:
Hér var eingöngu dreift moltu, án þess að sá fræi, í þeim tilgangi að fylgjast
með sjálfgræðslu. Í ósnortnu hrauninu umhverfis má sjá ýmsar tegundir sem eru
fræbanki fyrir svæðið. Fræ af þeim hefur þegar borist inn á svæðið í nokkrum
mæli þó er þekja þeirra aðeins orðin um 10%. Frá uppgræðslusjónarmiði má segja
að hér sé um lélegan árangur að ræða. Frá sjónarmiði sjálfgræðslu er hann hins
vegar allmikill sé hann borinn saman við gróðurframvindu á aðliggjandi svæðum
þar sem ekkert hefur verið að gert.
Árangur: Lélegur.
Lækjarbotnar III
Staðsetning innan svæðis: Um 300 m frá Suðurlandsvegi.
Framkvæmdaár: 2000.
Stærð: 3 ha.
Hæð yfir sjó: 130 m.
Samstarfsaðilar GFF: Waldorfskólinn, Kópavogsbær.
Landlýsing:
Halli: 0%
Landgerð: Gjallnáma, grófmalað hraun á yfirborði, efnisnáma.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Nánast ógróið.
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna og sáning grasfræs.
Gróðurfar eftir uppgræðslu:
Meðalgróðurþekja: 70%
Tegundir grasa og hálfgrasa: Blásveifgras, fjallasveifgras,
háliðagras, hálíngresi, knjáliðagras, skriðlíngresi; axhæra.
Aðrar plöntutegundir: Baldursbrá, blóðarfi, blóðberg,
brennisóley, dúnurt, gulvíðir, haugarfi, hjartarfi, hlaðkolla, hóffífill,
hundasúra, hvítmaðra, krossfífill, loðvíðir, músareyra, njóli, ólafssúra,
skarifífill, túnfífill, vallhumall, vegarfi.
Umsögn:
Haugarfi var ríkjandi í góðurþekjunni, en hlutdeild annarra tegunda að sama
skapi lítil. Arfinn er ekki varanleg tegund og þess vegna er aðeins unnt að
telja árangurinn lélegan.
Árangur: Lélegur.
|
|