Lífræn efni   Unnin verkefni   Gögn og niðurstöður

Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki


Krýsuvíkurskóli I

Staðsetning innan svæðis: Brekka sunnan við skólann.
Framkvæmdaár: 1998-1999.
Stærð: um 2 ha.
Hæð yfir sjó: 140 m.
Samstarfsaðilar GFF: Krýsuvíkursamtökin, Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd, Landsvirkjun, Hafnarfjarðarbær og Dráttarbílar ehf.

Landlýsing:

Halli: 20-45%.
Hallaátt: Suð-suðaustur.
Landgerð: Melur og urð, uppgröftur frá byggingarframkvæmdum.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Ógróið land.
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna, sáning grasfræs og trjáplöntun.

Gróðurfar eftir uppgræðslu:

Meðalgróðurþekja: 75%.
Tegundir grasa og hálfgrasa: Blásveifgras, blávingull, hálíngresi, snarrótarpuntur, túnvingull, týtulíngresi, varpasveifgras; axhæra, móasef, vallhæra.
Aðrar plöntutegundir: Augnfró, blóðberg, brennisóley, dúnurt, geldingahnappur, grávorblóm, haugarfi, hjartarfi, holurt, hundasúra, hvítmaðra, klóelfting, krossfífill, ljónslappi, lækjardepla, melanóra, músareyra, ólafssúra, skarifífill, túnfífill, túnsúra, vegarfi.

Umsögn:

Grasþekja er góð og margar staðbundnar tegundir hafa fest rætur á svæðinu.

Árangur: Góður

 

Krýsuvíkurskóli II

Staðsetning innan svæðis: Flöt sunnan við skólann.
Framkvæmdaár: 1999-2000.
Stærð: um 0,8 ha.
Hæð yfir sjó: 140 m.
Samstarfsaðilar GFF: Krýsuvíkursamtökin, Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd, Hafnarfjarðarbær, Landsvirkjun og Dráttarbílar ehf.

Landlýsing:

Halli: 0%
Landgerð: Melur og urð, uppgröftur frá byggingarframkvæmdum.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Ógróið land.
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna og sáning grasfræs.

Gróðurfar eftir uppgræðslu:

Meðalgróðurþekja: 50%
Tegundir grasa og hálfgrasa: Blásveifgras, blávingull, fjallasveifgras, snarrótarpuntur, skriðlíngresi, túnvingull, týtulíngresi, varpasveifgras, axhæra, vallhæra.
Aðrar plöntutegundir: Augnfró, blóðberg, brennisóley, dúnurt, geldingahnappur, grávorblóm, haugarfi, hjartarfi, holurt, hundasúra, lambagras, ljónslappi, lúpína, melanóra, músareyra, ólafssúra, skarifífill, túnsúra.

Umsögn:

Árangur getur ekki í heild talist vera meira en sæmilegur og er ástæðan fyrst og fremst sú að gróðri hefur verið spillt með akstri ökutækja um svæðið. Á þeim hluta svæðisins sem hefur fengið frið er grasþekja góð.


Árangur: Sæmilegur.


Krýsuvíkurskóli III

Staðsetning innan svæðis: Sunnan Gestsstaðavatns.
Framkvæmdaár: 2000.
Stærð: Um 2 ha.
Hæð yfir sjó: 140 m.
Samstarfsaðilar GFF: Landsvirkjun.

Landlýsing:

Halli: 10-15%.
Hallaátt: Austur.
Landgerð: Melur.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Lítt gróinn melur með 20% þekju af grösum og hálfgrösum.
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna, sáning grasfræs og trjáplöntun.

Gróðurfar eftir uppgræðslu:

Meðalgróðurþekja: 40%
Tegundir grasa og hálfgrasa: Blávingull, blásveifgras, bugðupuntur, skriðlíngresi, túnvingull; axhæra, vallhæra.
Aðrar plöntutegundir: Augnfró, blóðberg, dúnurt, geldingahnappur, hundasúra, hvítmaðra, lambagras, ljónslappi, melablóm, mosi, melanóra, músareyra, smjörlauf, túnsúra, þúfusteinbrjótur.

Umsögn:

Mjög litlu magni af fræi var dreift, en talsverðu af tilbúnum áburði ásamt lífrænu efnunum í þeim tilgangi að auka þekju þess gróðurs sem fyrir var á svæðinu. Þéttleiki gróðurþekjunnar hafði tvöfaldast, en það getur þó aðeins talist vera sæmilegur árangur á tveimur sumrum.

Árangur: Sæmilegur.

 

Krýsuvíkurskóli IV

Staðsetning innan svæðis: Sunnan skóla.
Framkvæmdaár: 2000.
Stærð: Um 4 ha.
Hæð yfir sjó: 140 m.
Samstarfsaðilar GFF: Landsvirkjun og Hafnarfjarðarbær.

Landlýsing:

Halli: 2 - 5%.
Hallaátt: Suðvestur.
Landgerð: Ógrónir melar með virkum rofabörðum.
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Gisinn melagróður.
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna og sáning grasfræs.

Meðalgróðurþekja eftir uppgræðslu: 55% .

Tegundir grasa og hálfgrasa: Blásveifgras, blávingull, bugðupuntur, fjallasveifgras, skriðlíngresi, túnvingull; axhæra.
Aðrar plöntutegundir: Augnfró, geldingahnappur, holurt, hvítmaðra, lambagras, melablóm, músareyra, túnsúra, skurfa, vegarfi.

Umsögn:

Góðurþekja getur talist vera sæmileg í ljósi þess að sáð var seint árið 2000 og því er í raun aðeins um árangur eins árs að ræða. Fyrst og fremst var um grasþekju að ræða, en staðbundnar tegundir höfðu lítið breiðst út. Gróður hafði verið talsvert bitinn.
Unnið var á stóru viðbótarsvæði sumarið 2001 og þar var árangur þegar orðinn góður.

Árangur: Sæmilegur

www.gff.is - Laugavegi 13 - 511 1930 - gff@gff.is