Lífræn efni   Unnin verkefni   Gögn og niðurstöður

Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki


Staðsetning innan svæðis: Sunnan Reykjanesbrautar, andspænis Álverinu.
Framkvæmdaár: 1997 og 1998.
Stærð: Um 2 ha.
Hæð yfir sjó: 20 m.
Samstarfsaðilar GFF: Hafnarfjarðarbær.

Landlýsing:

Landgerð: Gróft hraun, raskað af efnistöku.
Halli: 0%
Gróðurfar fyrir uppgræðslu: Gróðursnautt land með grámosa og krækilyngi á strjálingi.
Aðgerðir: Dreifing lífrænna efna og sáning grasfræs.

Gróðurfar eftir uppgræðslu:

Meðalgróðurþekja: 60%.
Tegundir grasa og hálfgrasa: Beringspuntur, blávingull, háliðagras, snarrótarpuntur, túnvingull; axhæra.
Aðrar plöntutegundir: Grámosi, gulmaðra, haugarfi, hundasúra, hvítmaðra, krækilyng, lokasjóður, melablóm, músareyra, ólafssúra, smjörlauf, skarifífill, undafífill, valmúi (gullsól), vegarfi, þrenningarfjóla.

Umsögn:

Gróðurþekja var á bilinu 40-80%, þ.e. allbreytilegt, og á sá breytileiki rætur sínar að rekja til ójafnrar dreifingar lífrænna efna. Yfirborð landsins er mjög gróft og þess vegna hefði verið þörf meira magns lífrænna efna. Gróður var sums staðar gulleitur vegna næringarskorts og þurrks. Hlutdeild grastegunda er orðin tiltölulega lítil miðað við það sem hún var á fyrsta og öðru ári eftir sáningu, þegar grös voru ríkjandi í gróðurfari. Hlutdeild staðbundinna tegunda er að sama skapi mikil, og er einkum um að ræða krækilyng og grámosa sem oft eru frumherjar í nýjum eða röskuðum hraunum. Greinilegt er að lífræna efnið hefur nýst þessum tegundum vel og flýtt mjög fyrir náttúrulegri gróðurframvindu. Þetta má sjá með samanburði við raskað hraun í nágrenninu þar sem ekkert hefur verið gert til að auka gróður.


Árangur: Sæmilegur

www.gff.is - Laugavegi 13 - 511 1930 - gff@gff.is