Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki
|
Stofnun GFF vorið 1997
Samtökin Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs voru stofnuð 8. apríl 1997. Helsti hvatamaður að stofnun samtakanna var Ingvi Þorsteinsson náttúrufræðingur en þeir Gunnar G. Schram lagaprófessor og Valdimar Jóhannesson blaðamaður komu einnig mjög við sögu. Þeir félagar fengu góðan hljómgrunn hjá þingmönnum af suðvesturhorninu og frá upphafi hefur verið starfandi bakland fimm þingmanna, eins frá hverjum stjórnmálaflokki, samtökunum til halds og trausts.
Stofnendum þótti að Landnám Ingólfs hefði orðið að ýmsu leyti útundan í áratuga viðleitni til landgræðslu á Íslandi. Þeir bentu á að þessi landshluti þar sem um 70 % landsmanna býr og þar sem gróður er jafn grátt leikinn af eyðingaröflum og raun ber vitni, verðskuldi talsvert meiri uppgræðslu en fram að því var raunin. Eins og nafn þeirra ber með sér er hinn mannlegi þáttur jafnan ofarlega á baugi í starfi samtakanna og sá skilningur lagður til grundvallar að gróður sé mannfólkinu til yndisauka.
Á stofnfundi samtakanna þann 8.apríl 1997 voru mættir um 200 manns. Ingvi Þorsteinsson var kjörinn formaður á stofnfundi og gegndi því embætti til vorsins 2001 þegar Sveinn Aðalsteinsson skólameistari Garðyrkjuskóla ríkisins tók við.
|
|