Lífræn efni   Unnin verkefni   Gögn og niðurstöður

Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki


Lýsing á uppgræðsluaðferðum GFF

Megintilgangurinn með uppgræðsluaðgerðum GFF er að koma af stað sjálfbærri gróðurframvindu með þeim náttúrulegu tegundum sem hinum ólíku svæðum eru eðlileg, en ekki nauðsynlega að framleiða mikla uppskeru.
Á fyrsta uppgræðsluári er gjarnan gefinn með smáskammtur af auðleysanlegum tilbúnum áburði til að bæta fyrir hina hægu losun næringarefna úr lífrænu efnunum. Þá er einnig sáð fræi ýmissa grastegunda til þess að umtalsverður lífmassi myndist strax á fyrsta ári og nái að hlífa yfirborði landsins fyrir vindrofi. Slíkt umhverfi skapar ný og betri vaxtarskilyrði fyrir aðrar tegundir og stöðvar frekari jarðvegs- og gróðureyðingu, þar sem hún á sér stað.
Hugmyndin að baki þessarar aðferðar GFF er sú að ef uppgræðslan heppnast vel strax á fyrsta ári, þurfi ekki að endurtaka áburðargjöf. Þá er oft gert ráð fyrir því að grastegundirnar sem sáð var upphaflega hverfi smám saman úr gróðursverðinum og hinar eiginlegu staðartegundir taki við. Á mörgum svæðanna hefur verið plantað trjám og runnum.
www.gff.is - Laugavegi 13 - 511 1930 - gff@gff.is