Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki
|
Lífrænn neysluúrgangur
Mikið magn af lífrænum leifum fellur til við daglegan rekstur heimila, verslana og annarra atvinnufyrirtækja. Ætlað er að hlutfall þessarar gerðar úrgangs í venjulegum neysluúrgangi frá heimilum sé um rúmlega helmingur. Þarna er um að ræða matarleifar og ýmiskonar pappír og pappa. Til að gera þessi efni efnafræðilega stöðug og nothæf sem uppgræðslu- og ræktunarefni þarf að umbreyta þeim yfir í moltu. Molta er efni sem að útliti, áferð og innri gerð líkist frjósömum, moldarkenndum jarðvegi. Slík umbreyting gerist t.d. með jarðgerð, en þá brotna hin lífrænu efni niður við súrefnisríkar aðstæður. Í verkefninu Skil 21 eru lífræn úrgangsefni sem falla til hjá nokkrum fyrirtækjum flokkuð frá öðrum úrgangi, þeim safnað og þau unnin í moltu sem síðan er notuð í uppgræðslu á vegum GFF í Landnámi Ingólfs. Moltan hefur reynst afar hagstætt efni til notkunar við trjáplöntun, enda notendavænt efni, lyktarlaust og hreinlegt.
|
|