Lífræn efni   Unnin verkefni   Gögn og niðurstöður

Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki


Af hverju lífræn efni til uppgræðslu ?

Þótt lífræn efni, t.d. humusefnin, séu ekki sjálf næringarefni plantna eru þau engu að síður grunnurinn að langtíma frjósemi jarðvegs, öðrum orðum sjálfbærum vexti. Hvernig má þetta vera ?
Flest munum við eftir sögunni um storkinn og refinn sem báða þyrsti og var borið gnægð af vatni. Storkurinn fékk vatn á grunnum diski en refurinn í djúpum blómavasa og hvorugur gat svalað þorsta sínum. Þessi staða er vandræðaleg fyrir bæði stork og ref. Á sama hátt er jarðvegur án lífræns efnis lítt fær um að svala þörf plantna fyrir vatn þótt gnægð sé af úrkomu. Sama gildir um hin raunverulegu næringarefni plantna, steinefnin, þeim skolar of auðveldlega út í slíkum jarðvegi, t.d. sandi.
Það gildir að gera vatnið og steinefni aðgengileg fyrir plönturnar, færa storkinum sopann í blómavasa og refnum á diskinum. Lífræn efni í jarðvegi halda vatni og steinefnum til haga fyrir rætur plantna. Lífrænu efnin, moldarefnin (humusefnin s.k.), mynda eins konar innviði í jarðvegi, hagstætt umhverfi hvað varðar vatn og næringu fyrir ræturnar. Rætur í slíku umhverfi hafa allar forsendur til að bera uppi blómlegan gróður.
Þess vegna kallar örfoka melurinn, sem víða einkennir gróðurfar í Landnámi Ingólfs, á lífræn úrgangsefni sem falla til frá ýmiss konar þéttbýlistengdri starfsemi eins og hestamennsku í þéttbýli, svína- og fuglabúum, lífrænan úrgang frá eldhúsum o.s.frv.
www.gff.is - Laugavegi 13 - 511 1930 - gff@gff.is