Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki
|
LAND-NÁM;
World Horizons, samstarf út fyrir landsteinana
Sumarið 2002 tók GFF á móti 10 manna hópi ungmenna, 14 - 18 ára frá Bandaríkjunum sem hingað komu á vegum samtakanna World Horizons. Þau samtök starfa í hefðbundnum bandarískum anda um að senda ungmenni út í heim til að gera gott og læra af heiminum. Hingað komu þau til að kynnast landi og þjóð og taka þátt í uppgræðslu, m.a. í LAND-NÁMS verkefnum með GFF og einnig hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Það er skemmst frá því að segja að heimsókn þeirra var gríðar vel heppnuð og WH hópurinn stóð sig firna vel í þeim verkefnum sem hann vann fyrir GFF. Má fara nærri um að svona hópur, í svona aðstæðum, sé gott vinnuafl. Hér var allt spennandi og öðruvísi en þau áttu að venjast. Allt virtist skemmtilegt, líka vinnan og því varð útkoman góð í leik og starfi.
Austurbæjarskóli skaut þaki yfir mannskapinn og GFF og OR höfðu undir höndum smárútu til að flytja fólk til og frá vinnu þannig að vel var séð fyrir grunnþörfum þeirra. Þá gafst tími til að kynnast Reykjavík og kom þar greinilega mörgum á óvart hve ríkulega borgin býður upp á viðburði og aðra menningu. Einnig gafst tími til að fara í hestaferð með Eldhestum um Hengilssvæðið. Loks má nefna að hópurinn þáði boð forseta Íslands um heimsókn til Bessastaða. Þegar WH hópurinn hélt af landi brott í lok júlí fóru þar 10 nýir Íslandsvinir.
|
|