Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki
|
LAND-NÁM; Samstarf með vinnuskólum
Frá því um sumarið 2001 hefur GFF átt samstarf við vinnuskóla á höfuðborgarsvæðinu um uppgræðslu í útmörkinni. Nemendur frá Vinnuskóla Kópavogs og Vinnuskóla Reykjavíkur hafa unnið að trjáplöntun á Sandskeiði og að uppgræðslu rofabarða á Bolaöldu. LAND-NÁM er jafnan lagt til grundvallar og nemendur skrá ýmsa lykilþætti úr starfi sínu til að hægt sé að meta vöxt plantnanna.
Sumrin 2001 og 2002 nutu vinnuskólarnir og GFF samstarfs við Svifflugfélag Íslands sem hefur eins og kunnugt er aðstöðu á Sandskeiði. Fengu nemendur inni í skála félagsins og aðgang að tölvu til að slá inn gögn. Hluti af samstarfinu eru ferðir sem GFF skipuleggur fyrir nemendur. M.a. var farið með nemendur austur að rótum Heklu og litið á hvernig uppblástur hefur leikið land þar og hverju hægt er að koma til leiðar með uppgræðslu.
|
|