Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki
|
LAND-NÁM
Uppgræðsla samþættuð námi og starfi ungmenna
Undanfarin tvö ár hefur komist á samstarf samtakanna Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs (GFF) við framhaldsskóla og vinnuskóla á starfssvæði samtakanna. Samstarf þetta gengur undir nafninu LAND-NÁM og snýst um virka þátttöku nemenda í uppgræðslustarfi undir leiðsögn GFF. Jafnhliða því að starfa að uppgræðslu afla nemendur gagna um vöxt plantna og framvindu af verkum sínum og koma þeim gögnum fyrir á tölvutækan gagnagrunn.
Ávinningur þessa samstarfs er fjölþættur. Auk gróins lands, felst ávinningurinn í þjálfun og þroska nemenda og þeim gagnlegu upplýsingum og þekkingarauka sem fæst af starfi þeirra. Fyrir nemendur fæst skýr tenging milli starfa úti í náttúrunni og vinnu sem nemendur inna af hendi innandyra og felst í innslætti og úrvinnslu gagna. Hvoru tveggja, útivinnan og sú sem unnin er innandyra fá þannig aukið gildi og merkingu fyrir nemendur.
Í verkefninu felst að nemendur vinna með gögn nemenda frá fyrri árum og fá því að reyna á eigin skinni mikilvægi þess að vanda allar mælingar og skráningar. Einn tilgangur þessa er að nemendur hvers árs skynji að þeir eru hlekkur í stærri keðju þar sem hver reiðir sig á annan, þ.e. á gæði þeirrar vinnu sem á undan er gengin. Vonast er til að þetta þroski með nemendum ábyrgðartilfinningu og vandvirkni. LAND-NÁM slær því nokkrar flugur í einu höggi.
GFF sér um skipulagningu, undirbúning og umsjón verkefnanna. Samtökin sjá um fyrirlestra fyrir nemendur og námskeið fyrir flokkstjóra í vinnuskólum. Þá skipuleggur GFF náms- og vettvangsferðir. Verkefni nemenda eru sett í samhengi við umhverfismál almennt. Ýmis hugtök úr umræðu um umhverfismál, sjálfbær þróun, gróðurhúsaáhrif, kolefnisbinding o.fl. eru tengd viðfangsefninu og reynt að glæða þessi hugtök merkingu fyrir nemendum. GFF freistar þess að fá sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki til að tengjast verkefnunum, allt eftir aðstæðum í hverju tilviki.
LAND-NÁM snýst m.a. um að kynna fyrir nemendurm vísindaleg vinnubrögð. Það inniber að oftast er einhver tilraunaþáttur fólgin í verkefnunum. Nemendur fá innsýn í það hvernig verkefni eru skipulögð með það að markmiði að afla þekkingar. Þeir skoða áhrif mismunandi áburðar á ýmsar tegundir plantna sem og áhrif af mismunandi magni á vöxt plantna o.s.frv. Gildi þessara upplýsinga er verulegt fyrir samtök eins og GFF og reyndar fyrir allt uppgræðslustarf í landinu.
GFF leggur áherslu á LAND-NÁM og þann fjölþætta ávinning sem því fylgir. Samstarfsaðilar GFF eru sammála um að þessi nálgun sé til þess fallin að vekja hjá nemendum áhuga á viðfangsefninu. Verkefnin eru og verða í stöðugri þróun og þarf að fara varlega í að ætla ekki nemendum um of, sérstaklega hvað varðar hinn "akademíska" þátt, mælingar og skráningar.
Sumarið 2002 tók GFF á móti 10 manna hópi ungmenna víðsvegar frá Bandaríkjunum sem hingað kom á vegum samtakanna World Horizons. Hópurinn gekk m.a. til verka við LAND-NÁM og fullkomnaði ýmislegt sem nemendum framhaldsskólanna vannst ekki tími til. Allar líkur eru á að framhald verði á komu hópa frá WH á næstu árum. Það er stefna GFF að tengja þessar heimsóknir enn frekar við það starf sem fram mun fara undir merkjum LAND-NÁMS.
|
|