Lífræn efni   Unnin verkefni   Gögn og niðurstöður

Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki


LAND-NÁM er heiti á samstarfi samtakanna Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs (GFF) við framhaldsskóla og vinnuskóla á starfssvæði samtakanna. LAND-NÁM snýst um þátttöku nemenda í uppgræðslustarfi á vegum GFF þar sem nemendur kynnast því jafnhliða hvernig gagna er aflað um framvindu og vöxt í ríki náttúrunnar. Nemendu vakta árangur af eigin starfi með því að mæla og skrá ýmsa þætti og koma þeim fyrir í rafrænum gagnagrunni.
Á þessum vef eru gögn úr trjáplöntun nemenda slegin inn beint af til þess gerðum skráningarskýrslum sem útfylltar eru á vettvangi. Einnig er hægt að skoða þær færslur sem fyrir eru í grunninum.
Í dag eru upplýsingar um 1511 klasa með alls um 37775 trjáplöntur í gagnagrunni Land-Náms.
2 klasar (eða um 50 plöntur) hafa verið mældir fjórum sinnum.
Alls hafa verið framkvæmdar 1861 mælingar á plöntuklösum.

Skoða niðurstöður
www.gff.is - Laugavegi 13 - 511 1930 - gff@gff.is