Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki
|
Hvað er "LAND-NÁM"?
GFF hefur frá öndverðu átt ágætt samstarf við ýmsar mennta- og uppeldisstofnanir í Landnámi Ingólfs um uppgræðslustarf nemenda. Síðustu tvö ár hefur samstarf af þessu tagi færst í aukana og fengið aukna staðfestu. Samstarfið snýst um að samþætta uppgræðslustarf nemenda við að mæla og skrá ýmsar upplýsingar úr ríki náttúrunnar, meðhöndla þær síðan eftir því sem þroski og geta nemendanna býður upp á. Þessi samstarfsverkefni hafa hlotið heitið LAND-NÁM og þeir aðilar sem unnið hafa undir því hingað til eru Flensborgarskólinn í Hafnarfirði og Borgarholtsskólinn í Reykjavík sem báðir eru á framhaldsskólastigi og Vinnuskóli Reykjavíkur og Vinnuskóli Kópavogs. Þá hafa samtökin World Horizons sem staðsett eru í Connecticutt í USA sent mannskap til að taka þátt í LAND-NÁMS verkefnum GFF og upplifa Ísland.
Það er sammerkt öllum verkefnum undir LAND-NÁMI að þátttakendum er gert að skerpa athyglina, mæla og skrá það sem gert er svo afla megi haldbærra upplýsinga um framvindu þeirrar uppgræðslu sem fram fer. Þessar upplýsingar koma ekki í ljós fyrr en í tímans rás og því er mikilvægt að verkefnin séu þannig unnin að hægt sé að útbúa seríur af mælingum sem ná yfir langan tíma. Þetta útheimtir að verkefnin séu staðsett skilmerkilega og að haldið sé utan um mælingar á ákveðnum plöntum og að þær mælingar séu rekjanlegar til ákveðinna plantna eða verkefni. Þeir hópar nemenda sem koma ári og árum seinna þurfa að geta vitað með vissu hvaða plöntur þeir eru að mæla og bera saman við mælingar fyrri ára til að geta borið saman og fengið hugmynd um vöxt.
Í raun eru nemendur að safna gögnum og raða þeim í gagnagrunn. Misjafnt er hve mikið nemendur vinna svo með gögnin enda munur á aðstöðu vinnuskóla miða við aðstöðu t.d. framhaldsskóla. Grundvallaratriðið er að nemendur taka þátt í að afla gagna og fylgja þeim eftir alla leið inn í gagnagrunn á rafrænu formi. Hið uppeldis- og menntunarlega gildi sem þessi aðferð hefur felst í að nemendur ná að tengja eigið starf úti í mörkinni við úrvinnslu gagna sem þau afla þar sjálf. Nemendur kynnast sem sagt öllu ferlinu, sem fær þ.a.l. aukna merkingu fyrir þeim.
|
|