Lífræn efni   Unnin verkefni   Gögn og niðurstöður

Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki


Uppgræðsla meðfram vegum

Vaninn er að Vegagerðin láti græða upp sár meðfram nýjum eða nýviðgerðum vegum. GFF og Vegagerðin hafa átt samvinnu um að nýta lífræn úrgangsefni í slíka uppgræðslu og hafa nokkur smærri verkefni verið unnin á síðustu árum. Má nefna nokkra s.k. skeringa á Suðurlandsvegi rétt vestan við Litlu kaffistofuna sem græddir voru upp árið 2002 með hrossataði úr Kópavogi. Þá var sumarið 2004 unnið að uppgræðslu á allbreiðum vegkanti á Bláfjallaleið með því að nota garðaúrgang úr Reykjavík. Á þessu svæði er all ströng vatnsvernd sem hindrar það að hefðbundin áburðarefni séu notuð. Á hinn bóginn kallar vatnsvernd á að vegkantar séu grónir því gróðurhula er líklega skilvirkasta vörnin gegn því að efni hripi niður í grunnvatnið eftir hugsanlegt mengunarslys á veginum.
Vegagerðin og GFF eiga nú í viðræðum um hugsanlega uppgræðslu meðfram nýbreikkaðri Reykjanesbraut og nota til þess hrossatað úr Hafnarfirði. Þetta verkefni yrði unnið strax nú um vorið 2005 eða snemmsumars.
www.gff.is - Laugavegi 13 - 511 1930 - gff@gff.is