Lífræn efni   Unnin verkefni   Gögn og niðurstöður

Um GFF
Á döfinni
Styrktaraðilar
Landnám Ingólfs
Land-Nám
Gagnabanki


Uppgræðsla malarnámunnar á Kjalarnesi

Vegfarendur þekkja flestir malarnámuna sem er norðan vegar í utanverðum Kollafirði. Í hvassviðrum sem verða gjarna harðari á Kjalarnesi en annars staðar fýkur oft úr þessari námu bíleigendum til ama og tjóns. Nú er útlit fyrir að hætt verði að nota þessa námu og þ.a.l. tímabært að huga að frágangi hennar. GFF hefur verið með áætlun þar að lútandi um nokkurra ára skeið sem byggist á að nota lífræn efni úr sveitinni í kring til að mynda frumdrög að jarðvegi ofan á klöppina. Eftir er að sjá hvort þessi leið verður farin í sumar en viðræður milli GFF, Umhverfisstofu Reykjavíkurborgar og landeiganda eiga sér stað þessa dagana.
www.gff.is - Laugavegi 13 - 511 1930 - gff@gff.is